Nákvæmlega ári seinna

Upplifi ég jarðskjálfta hér á gömlu herstöðinni.
mbl.is Jörð skalf við Grindavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reiður

Ég verð svo óstjórnlega reiður þegar ég les svona fréttir hvað er að þessu djöfulsins liði að skilja byssur eftir á glámbekk og þar að auki var byssan hlaðin og væntanlega hefur öryggið ekki verið á ohhh svei ykkur vanhæfu djöfulsins foreldrar. Í bland við reiðina er maður sorgmæddur yfir því að lítill drengur skuli þurfa að láta lífið og systir hans væntanlega eyðilögð manneskja eftir þetta.
mbl.is Þriggja ára stúlka skaut litla bróður sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Furðulegt

Ég skil ekki alveg skuldum við ekki nokkur hundruð milljarða, tæplega 20 þúsund atvinnulausir, 10 fyrirtæki í þrot á dag og allir fastir í skuldafangelsi með yfirveðsettar eignir og svo kemur þessi frétt eins og þruma úr heiðskíru lofti. Ég hef ekki kynnt mér þetta nógu vel en þetta er bara það sem maður hefur lesið undanfarnar vikur og mánuði í fjölmiðlum en vonandi er eitthvað til í þessari frétt.


mbl.is Það versta mögulega afstaðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýfingar

Þó svo þetta séu klárlega ekki réttu viðbrögð Pepe og mjög gróft hvernig hann sparkar í liggjandi manninn þá fer ekkert á milli mála að jújú Pepe ýtti aðeins í hann en svo tók hann ægilega dýfu í stað þess að reyna að skora og þetta er gjörsamlega óþolandi hegðun þegar menn ákveða að taka svona dýfur í stað þess að reyna að standa í lappirnar eins og menn.
mbl.is Pepe missti stjórn á skapi sínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlegar upphæðir

Þetta eru ótrúlegar upphæðir til að halda einu fyrirtæki gangandi og það eru mun fleiri sem koma til með að þurfa aðstoð og eru reyndar nú þegar búnar að fá aðstoð. Eigum við ekki bara að selja þeim vallarheiðina aftur á uppsprengdu verði þegar þriðja heimsstyrjöldin skellur á og redda þjóðarskútunni.  Tounge


mbl.is Forstjóri AIG ver kaupaukagreiðslurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Átta ár ?

Átta ár fyrir morð á tveimur börnum er það ekki andskoti mildur dómur. Ég ætla að vona að henni verði plantað á einhverju geðveikrahæli eftir þessi átta ár.
mbl.is Dæmd fyrir morð á tveimur börnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mike Hunt

Þetta nafn hefur mér alltaf þótt sérstaklega óheppilegt en það er alveg sama hvort þú segir nafnið hratt eða hægt það hljómar alltaf eins og ................já þið bara prófið sjálf.
mbl.is Óheppileg nöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband